Um verkefnið

Um verkefnið

Staðreyndavaktin safnar saman fullyrðingum úr opinberri umræðu um Evrópusambandið, EES, evru, fullveldi, landbúnað, sjávarútveg og stöðu Íslands. Verkefnið er óháð og rekið án tengsla við stjórnmálaflokka eða hagsmunasamtök.

Markmiðið er ekki að segja fólki hvað það á að kjósa. Markmiðið er að skoða staðreyndir, birta heimildir og sýna hvað er rétt, hvað er rangt og hvað vantar í samhengið.

Fullyrðingar frá öllum hliðum umræðunnar eru skoðaðar með sömu mælistiku, óháð því hvaðan þær koma. Hér eru engin skoðanaskrif: skoðaðar eru staðhæfingar, ekki fólk.

Hver stendur að síðunni?

Ég heiti Ástþór Ingi Pétursson og ber einn ábyrgð á þessari síðu. Ég starfa við hugbúnaðargerð og hef ekki tekið þátt í opinberri stjórnmálaumræðu áður. Þessi síða varð til vegna þess að mér þótti umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna föst í hrópum, sömu fullyrðingarnar endurteknar, hálfsannleikur á báða bóga og fáar heimildir. Í stað þess að hrópa á móti ákvað ég að fletta hlutunum upp og birta niðurstöðurnar þannig að hver sem er geti sannreynt þær.

Ég gegni engu hlutverki í stjórnmálaflokki og hef engin tengsl við baráttusamtök í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, hvorki á já- né nei-hlið.

Ég er ekki sérfræðingur í Evrópurétti eða hagfræði og þykist ekki vera það. Þess vegna eru niðurstöður hér ekki byggðar á mínu persónulega mati eða skoðunum, hver einasta niðurstaða vísar í frumheimildir sem þú getur skoðað sjálf/ur, og ef ég hef rangt fyrir mér vil ég vita það, sjá leiðréttingar.

Síðan er fjármögnuð úr eigin vasa, hér eru engar auglýsingar, engir styrkir og engir bakhjarlar.

Hvernig virkar þetta?

Hverri fullyrðingu fylgja heimildir, þannig er hægt að rekja hvaðan hver niðurstaða kemur og leiðrétta hana ef þörf krefur. Um notkun gervigreindarverkfæra við vinnsluna er fjallað opinskátt í aðferðafræðinni.

Sjá nánar um vinnubrögð á síðunni Aðferðafræði og um leiðréttingar á síðunni Leiðréttingar.

Ábendingar

Ábendingar um fullyrðingar sem vert er að skoða, eða um villur sem þarf að leiðrétta, eru vel þegnar. Bestu ábendingum fylgja heimildir. Sendu póst á abending@stadreyndavaktin.is.